Aukasýningar

Uppselt er á lokasýningu á Verkinu VAKT sem fer fram í kvöld.. en örvæntið ekki þar sem við erum búin að bæta við aukasýningu á fimmtudagskvöldið 19. ágúst klukkan 21.00!!!

Það sama kvöld mun Leikhópurinn Dans á Rósum taka aukasýningu á Singalong gamandansleikhúsverkinu Mario Bros sem er hressandi sýning fyrir alla fjölskylduna klukkan 19:00.

Ekki missa af þessu tækifæri til þess að sjá þessar frábæru sýningar!

Posted in Uncategorized

1224m in Reykjavík

Ágætu vinir,

það er okkur sönn ánægja að færa ykkur verkið “1224m in Reykjavík” en það er hluti af Dancewalks-röð sænska hreyfihönnuðarins Önnu Asplind.

Hlaðið niður hljóðskránni hér. Upphafsstaðurinn er svo við blágrænu húsin niður á Reykjavíkurhöfn, þar sem Sægreifinn er til húsa.

Góða skemmtun!

Posted in RPSP, Uncategorized

Sýningar kvöldins

Sýningar kvöldsins eru:
small is beautiful eftir ensku listakonuna Sarah Hopfinger.
Small is Beautiful er einlægt og skondið verk sem reynir að finna von í heimi sem er stöðugt meir og meir úr tengslum við manneskjurnar.Fullt af leikgleði, en einnig mjög flókið sambland af áhyggjum, gleði og löngunum” (****Glasgow, The Herald).
- Þrír útskriftarnemendur sýna lokaverk sín frá P.A.R.T.S. (Performing Arts Research and Training Studios)
  • Take it Away –a quartet for a female dancer and three microphones – Melkorka Sigríður Magnúsdóttir
  • Discounts – Boglárka Börcsök
  • The Secret for a Meaningful Piece – Nestor García Diaz
Upphrópanir er verk í stöðugri vinnslu og endurmati. Efnistök verksins eru bréfasamskipti franska leikarans, leikstjórans, rithöfundarins og heimspekingsins Antonin Artaud við marga af hans samtíðarmönnum og konum.
Aðstandendur:  Guðmundur Ingi Þorvaldsson og Mischa Twitchin

Posted in Uncategorized

Allt í fullu fjöri

Allt að gerast á artFart.. tvær uppseldar sýningar í gærkvöldi Vakt og Mario Bros.

Önnur sýning á Mario Bros í kvöld klukkan 21:00… Tryggðu þér miða.. það er að seljast hratt upp.

Loka sýning á Pure Pleasure seekers í kvöld klukknm 20:00 í Útgerðinni.

Posted in Uncategorized

Spektralhátíðin

Efnisskrá Spektralhátíðar Kammersveitarinnar Ísafoldar er komin á netið.

Hér er beinn linkur inn á hana…

Posted in Uncategorized

Fyrstu sýningar artFart gengu eins og í sögu…. Hátíðin er í blússandi gír og í kvöld verður verkið Hvernig var þinn dagur? frumsýnt í Útgerðinni klukkan 21:00!

Ekki missa af!

Posted in Uncategorized

Tæknileg vandamál

ATHUGIÐ – við erum flytja vefhýsinguna og þess vegna liggja netföngin artfart@artfart.is og midapantanir@artfart.is niðri.

Vinsamlegast  notið svidslist@gmail.com eða hringið í síma 6639444 eða 6908600

-artFart teymið

Posted in Uncategorized